Stærðir í vintage fatnaði: Af hverju miðinn segir ekki alla söguna
REWIND VINTAGE / VINTAGE RÁÐ
Af hverju miðinn segir ekki alla söguna
Þú finnur flík sem þú elskar, skoðar stærðarmiðann og hugsar: „Þetta er ekki mín stærð.“ En áður en þú hengir hana aftur á slána er þess virði að máta.
01
Sama tala, ólíkar stærðir
Stærðarkerfi hafa breyst í gegnum tíðina og eru mismunandi eftir löndum og framleiðendum. Flík merkt stærð 38 getur því setið allt öðruvísi en nýrri flík með sömu tölu.
Það er engin ein regla sem breytir öllum vintage stærðum yfir í nútímastærðir. Miðinn er vísbending, en sniðið, málin og efnið segja þér meira.
02
Sniðið skiptir máli
Flíkur frá ólíkum tímabilum eru hannaðar með ólíka lögun og passform í huga. Kjóll getur verið rúmur yfir brjóstið en þröngur í mittið, og buxur með háu mitti sitja öðruvísi en buxur sem hvíla á mjöðmunum.
Efnið hefur líka áhrif. Flík úr efni án teygju þarf yfirleitt meira svigrúm til að þú getir hreyft þig þægilega. Teygjanleg flík getur hins vegar fallið nær líkamanum.
Vintage flík getur auk þess hafa verið stytt, þrengd eða breytt fyrir fyrri eiganda. Upprunalegi stærðarmiðinn tekur ekki mið af þeim breytingum.
03
Besti samanburðurinn er flík sem passar þér vel
Þegar þú kaupir vintage á netinu er gott að bera uppgefin mál saman við svipaða flík sem þú átt og líður vel í.
Leggðu hana flata, án þess að teygja á efninu, og mældu:
Bolir og jakkar
Breidd milli handarkrika, axlabreidd, ermalengd og heildarlengd.
Buxur
Mittisbreidd, mjaðmabreidd, skálmalengd að innan og hæð frá klofi upp að mitti.
Kjólar og pils
Mitti, mjaðmir og heildarlengd, auk brjóstmáls þegar það á við.
Athugaðu hvernig málin eru gefin upp. Mittisbreidd mæld á flík sem liggur flöt er annað en ummál mittisins.
FLÖT BREIDD OG UMMÁL
35 cm × 2 ≈ 70 cm
Ef flöt mittisbreidd er 35 cm samsvarar hún um það bil 70 cm ummáli.
Mál flíkur og líkamsmál eru heldur ekki alveg það sama. Flíkin þarf að hafa það svigrúm sem sniðið og efnið kalla á.
04
Mátaðu með þægindin í huga
Þegar þú mátar skaltu ekki bara horfa í spegilinn. Prófaðu líka að setjast, lyfta höndunum og ganga nokkur skref. Flíkin á að henta þér í hreyfingu, ekki aðeins þegar þú stendur kyrr.
Hugsaðu líka um hvernig þú vilt klæðast henni. Viltu hafa prjónapeysu undir jakkanum? Á skyrtan að vera laus eða aðsniðin? Þitt eigið val skiptir meira máli en talan á miðanum.
05
Finndu þitt passform
Það getur verið frelsandi að sleppa hugmyndinni um eina fasta „mína stærð“. Í vintage fatnaði gætirðu fundið flíkur með mjög ólíkum stærðarmerkingum sem passa þér allar vel.
Skoðaðu því málin, finndu fyrir efninu og gefðu flíkinni tækifæri í mátun. Uppáhaldsflíkin þín gæti leynst á slánni sem þú hefðir annars gengið fram hjá.
Við hjá Rewind Vintage setjum inn mál á hverri einustu flík til að auðvelda viðskiptavinum okkar að versla vintage fatnað á netinu. Einnig erum við með frábæra skilmála um skil á vörum. Við endurgreiðum allar vörur að fullu* svo það er lítil áhætta að versla í netversluninni okkar, máta heima og skila því sem passar ekki.
*Eyrnalokkum fæst ekki skipt né skilað.
Ljósmyndir úr netverslun Rewind Vintage.

