Viðskiptavinir Rewind Vintage – Kynnumst Natöshu
Þægindi, tímalausar flíkur og ást á denim.
Það er fólkið sem gerir Rewind Vintage að því sem það er. Fólk með ólíkan stíl, ólíkar sögur og sína eigin leið til að tjá sig í gegnum fatnað.
Í viðtalsseríunni „Viðskiptavinir Rewind Vintage“ kynnumst við fólkinu sem verslar hjá okkur, uppáhaldsflíkunum þeirra og því sem persónulegur stíll þýðir fyrir það.
Fyrst í röðinni er Natasha! Hún lýsir stílnum sínum sem þægilegum, klassískum og afslöppuðum. Þessa dagana eru þægindin í fyrirrúmi í annasömu hversdagslífi með börnunum, en hún hlakkar líka til að finna nýja útgáfu af sínum eigin stíl.

Hvernig myndir þú lýsa þínum persónulega stíl í þremur orðum?
Þægilegur, klassískur og afslappaður.
Hvað veitir þér innblástur þegar kemur að tísku?
Akkúrat núna er ég ekkert sérstaklega mikið að pæla í tísku. Ég klæði mig fyrst og fremst þægilega svo ég geti verið með krökkunum mínum án þess að þurfa að hafa áhyggjur af fötunum. En honestly, ég hlakka til þegar þær verða aðeins eldri og ég get farið að finna nýja útgáfu af mínum eigin stíl.
Hver er uppáhaldsflíkin í fataskápnum þínum og hvaða sögu á hún?
Ég á eiginlega þrjár uppáhaldsflíkur! Sú fyrsta er ljósgulur jumpsuit úr flauelsefni sem ég keypti í Kaupmannahöfn síðasta sumar. Ég elska corduroy! Hinar tvær eru gallabuxur og gallajakki sem mynda sett sem ég keypti í COS fyrir mörgum árum. Ég hef notað það ótrúlega mikið og mér hefur alltaf liðið svo vel í því. Ég kallaði það „my Canadian suit“, haha!

Hvað er það sem heillar þig við vintage og second-hand?
Ég hef í rauninni ekki keypt mjög mikið second-hand í gegnum tíðina, en ég hef fundið nokkrar mjög flottar flíkur hjá Rewind. Maður sér svo mikinn mun á fötum sem voru framleidd fyrir 20–30 árum. Þau eru oft vandaðri, betur gerð og endast lengur. Þess vegna reyni ég að velja flíkur sem ég sé fyrir mér að eiga og nota í mörg ár, frekar en bara nokkrum sinnum.
Hvaða tískutímabili myndir þú helst vilja ferðast aftur til?
70s–90s. Denim heaven! 👖

Hvað er eitthvað sem þú myndir aldrei losa þig við úr fataskápnum?
Ég á tvo oversized hörblazera, einn svartan og einn beige, sem ég mun eiga að eilífu. Þeir eru alltaf my go-to þegar mér finnst ég ekkert hafa til að fara í.
Hvað þýðir það fyrir þig að hafa sinn eigin stíl?
Að geta sett saman föt á þann hátt að manni líði vel í því sem maður er í. Feeling confident and happy.
Stíllinn breytist með okkur
Það sem okkur finnst svo skemmtilegt við nálgun Natöshu á tísku er hversu persónuleg hún er. Stíllinn þarf ekki alltaf að snúast um nýjustu trendin eða að endurnýja fataskápinn. Stundum snýst hann einfaldlega um að finna flíkur sem henta lífinu eins og það er hverju sinni og sem maður vill halda í árum saman.
„Að geta sett saman fötin sín þannig að manni líði vel í því sem maður er í. Feeling confident and happy.“
Við þökkum Natöshu kærlega fyrir að leyfa okkur að kynnast henni og hennar persónulega stíl. Fylgstu með þegar við kynnumst fleiri viðskiptavinum Rewind Vintage!